Parið farið úr landi

Ránið var framið í skartgripaverslun Guðbrands J. Jerzoski við Laugaveg …
Ránið var framið í skartgripaverslun Guðbrands J. Jerzoski við Laugaveg 48 í Reykjavík. mbl.is/Styrmir Kári

Skartgripum var stolið úr verslun í miðborg Reykjavíkur í gær. Par af erlendum uppruna var strax grunað um verknaðinn, en það kom til landsins síðastliðinn mánudag. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hafði þá afskipti af þeim, en grunur lék á að þau væru hingað komin í vafasömum erindagjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði og afskipti af þeim sama dag og þau komu, grunuð meðal annars um að hafa stolið fatnaði og matvælum.  Ekki tókst að færa sönnur á þjófnaðinn en þeim gert að fara af landi brott innan tveggja sólarhringa. Þau hafa engin tengsl við landið og óvíst um framfærslu þeirra hér á landi.

Í kjölfar þjófnaðanna á skartgripunum, hvers verðmæti er á fjórðu milljón, var umfangsmikil leit gerð að þeim auk þess sem lýst var eftir þeim í fjölmiðlum. Þau voru svo handtekin af lögreglunni á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi, þá komin í Leifsstöð og á leið úr landi. Þýfið fannst á þeim við handtöku.

Þau voru yfirheyrð í dag af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og telst málið upplýst. Þau fóru af landi brott að yfirheyrslum loknum. Komi þau að nýju verður mál þeirra tekið upp aftur.

Frétt mbl.is: Þjófarnir voru mjög kurteisir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert