Atvinnuleysi eykst lítillega

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun mbl.is/Ómar Óskarsson

Skráð atvinnuleysi í nóvember var 4,1 %, en að meðaltali voru 6.525 atvinnulausir í nóvember og fjölgaði atvinnulausum um 292 að meðaltali frá október eða um 0,2 prósentustig Skráð atvinnuleysi að meðaltali frá janúar til nóvember 2013 var 4,5%.

Í nóvember fjölgaði körlum um 249 að meðaltali á atvinnuleysisskrá en konum um 43 og var atvinnuleysið 3,6% meðal karla og 4,6% meðal kvenna.

Meira atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum en annars staðar

Atvinnulausum fjölgaði að meðaltali um 94 á höfuðborgarsvæðinu en um 198 að meðaltali á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 4,5 % á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni var atvinnuleysið 3,4%. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 6,2% . Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra,1,3%, samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar.

Alls voru 7.076 manns atvinnulausir í lok nóvember . Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 6.288. Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði samfellt er nú 3.416, fjölgar um 17 frá október og eru um 48% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í nóvember.

Færri ungmenni án atvinnu í ár en í fyrra

Fjöldi þeirra sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár samfellt var 1.952 í nóvemberlok, en 1.955 í októberlok og fækkar því um 3 milli mánaða. Alls voru 1.085 á aldrinum 16 - 24 ára atvinnulausir í lok nóvember 2013 eða um 15 % allra atvinnulausra í nóvemberlok en 995 í lok október og fjölgar um 90 milli mánaða.

Í lok nóvember 2012 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 1.357 og hefur því fækkað um 272 milli ára í þessum aldurshópi.

Alls voru 1.255 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok nóvember, þar af 697 Pólverjar eða um 55% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Flestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í gistingu og veitingastarfsemi.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert