Enn snjóflóðahætta á Vestfjörðum

Vegna snjóflóðahættu er lokað á Vestfjörðum um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð.
Vegna snjóflóðahættu er lokað á Vestfjörðum um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Áfram er lokað um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð, samkvæmt tilkynningu frá almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps. Ef veðurspá gengur eftir má þó gera ráð fyrir að hægt verði að opna fyrir umferð í fyrramálið.

Í millitíðinni er neyðarflutningur um Eyrarhlíð þó tryggður, en það á eingöngu við um sjúkralið, slökkvilið, björgunarsveitir og lögreglu.

Umferð um Skutulsfjarðarbraut, kaflann milli Seljalands og áhaldahúss, verður áfram vöktuð af björgunarsveitarmönnum til kl. 03.00 í nótt, en eftir það verður lokað fyrir alla umferð um veginn.

Flateyrarvegi verður lokað kl. 19.00 í kvöld. Eins og staðan er núna er ekki gert ráð fyrir frekari rýmingum en þeim sem þegar hafa verið gerðar.

Búist er við aukinni úrkomu og meiri vindi á norðanverðum Vestfjörðum næstu klukkustundirnar, en veðurspáin gerir ráð fyrir að veður gangi niður undir morgun.

Almannavarnir vísa í upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777, vegagerdin.is og vedur.is til frekari upplýsinga. Þá getur verið gott að fylgjast með facebook-síðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, og logreglan.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert