Ósátt við breytingar á rammaáætlun

Friðland í Þjórsárverum
Friðland í Þjórsárverum Elín Esther Magnúsdóttir

Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýna ákvörðun umhverfisráðherra að gera breytingar á rammaáætlun og leggja áherslu á að samþykktir í lögum um vernd og orkunýtingu haldi gildi sínu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Í ljósi ákvörðunar umhverfisráðherra um breytingar á fyrirhugaðri stækkun friðlýsingarsvæðis Þjórsárvera og mögulegra veituframkvæmda við Norðlingaöldu, vilja Samtök ferðaþjónstunnar ítreka mikilvægi þess að staðið sé við samþykkta rammáæltun.  Áætlunin byggir á hugmyndafræði um verndun, bið og nýtingu mismunandi landssvæða en svo virðist sem verndun sé að engu gerð  með þessari ákvörðun ráðherra. Treysta verður á að samþykktir í lögum um vernd og orkunýtingu haldi gildi sínu.  Öðruvísi er ekki hægt að byggja upp og þróa mismunandi landsvæði með langtíma hugsun í huga.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert