Rennsli Múlakvíslar minna en í gær

Múlakvísl
Múlakvísl Eggert Jóhannesson

Rennsli Múlakvíslar hefur minnkað síðan í gær. Rafleiðni vatnsins var ~328 µS/cm, kl. 13.15 í dag, sem bendir til þess að jarðhitavatn seytli enn framundan Kötlujökli.

Ekki er hætta á tjóni enn sem komið er en vel er fylgst með vatnshæð og leiðni í ánni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert