Lika fær dvalarleyfi

Lika Korinteli hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Lika Korinteli hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Eggert Jóhannesson

Lika Korintelli, georgísk kona sem sótti fyrst um hæli hér á landi árið 2005, hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þetta staðfesti Helga Vala Helgadóttir, lögmaður hennar, í samtali við mbl.is.

Eins og áður hefur komið fram kom Lika hingað til lands árið 2005 og sótti um hæli. Umsókn hennar var synjað af Útlendingastofnun (ÚTL) eftir hálft ár og dóms- og kirkjumálaráðuneytið staðfesti útskurðinn hálfu ári síðar. Í ferli málsmeðferðar komu þær upplýsingar frá yfirvöldum Georgíu að þau gætu ekki borið kennsl á að Lika væri ríkisborgari í Georgíu.

Það að Lika geti ekki framvísað gögnum sem sanna á óyggjandi hátt að hún sé sú sem hún segist vera stóð líka í vegi fyrir því að Útlendingastofnun tæki ákvörðun um að veita henni leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Nú hefur innanríkisráðuneytið hins vegar fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar og fær Lika dvalarleyfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert