Fá störf fyrir menntafólk

Störfum hefur fjölgað í mannvirkjagerð að undanförnu.
Störfum hefur fjölgað í mannvirkjagerð að undanförnu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hagvöxtur umfram væntingar í fyrra leiddi til verulegrar fjölgunar starfa fyrir fólk með grunnskólapróf. Atvinnuleysi meðal háskólamenntaðra breyttist hins vegar lítið.

Samkvæmt Vinnumálastofnun voru 1.667 án vinnu með háskólapróf í febrúar 2013 en 1.614 í febrúar í ár, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.

Margir eru oft um hituna þegar störf losna og má nefna að alls sóttu 137 um starf við kynningarmál hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Launin eru sögð hófleg. Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs, segir fjölgun starfa í ferðaþjónustu og mannvirkjageiranum hafa óveruleg áhrif á framboð starfa fyrir háskólamenntaða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert