„Felur í sér nýja hugsun“

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að sú leið ríkisstjórnarinnar að leyfa skattfrjálsa notkun séreignalífssparnaðar við kaup á fyrstu eign, að hámarki 1,5 milljónir króna, feli í sér nýja hugsun. Þetta verður hægt næstu fimm árin en umfang aðgerðanna verður það sama og áður var kynnt.

Bjarni segir mikla samstöðu um aðgerðirnar innan ríkisstjórnarinnar. Sérstök vefgátt verður opnuð á vefsvæði ríkisskattstjóra hinn 15. maí næstkomandi þar sem hægt verður að sækja um leiðréttingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert