Margir ökumenn óku of hratt

mbl.is/Hjörtur

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

„Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, á móts við Norðurbakka 19 -25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 126 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að vöktunin hafi verið liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert