Hvammsvirkjun í orkunýtingarflokk

Hvammsvirkjun er ein þriggja virkjana í neðri hluta Þjórsár.
Hvammsvirkjun er ein þriggja virkjana í neðri hluta Þjórsár. mbl.is/RAX

Verkefnisstjórn 3. áfanga áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða hefur skilað umhverfis- og auðlindaráðherra tillögu sinni um að Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár verði flutt úr biðflokki rammaáætlunar í orkunýtingarflokk. Er það að afloknu 12 vikna almennu umsagnarferli. Eftir samráð umhverfis- og auðlindaráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra var tillagan lögð óbreytt fyrir ríkisstjórn í morgun sem samþykkti að leggja hana fram á Alþingi.

Í greinargerð verkefnisstjórnar kemur fram að niðurstaðan sé fengin að teknu tilliti til fyrirliggjandi upplýsinga og með hliðsjón af mati faghóps um laxfiska í Þjórsá. Er þar m.a. vísað í skýrslu sérfræðihóps um laxfiska í Þjórsá og nýlegar upplýsingar frá Landsvirkjun sem faghópur fór yfir. Var það niðurstaða faghópsins að óvissa varðandi áhrif Hvammsvirkjunar á laxfiska hefði minnkað nægjanlega til að réttlætanlegt væri að færa virkjunina í nýtingarflokk. Að teknu tilliti til þessa leggur verkefnisstjórn til að Hvammsvirkjun verði flutt úr biðflokki í orkunýtingarflokk.

Alls bárust 33 umsagnir í 12 vikna almennu umsagnarferli sem lauk 19. mars. Alls voru um 55% umsagna frá einstaklingum, 30% frá fyrirtækjum og samtökum innan atvinnulífsins, 12% frá náttúruverndarsamtökum og 3% eða ein umsögn frá Veiðifélagi Þjórsár.

Yfirferð verkefnisstjórnar á umsögnunum leiddi í ljós að þær lutu í stórum dráttum að 12 efnisatriðum. Umfjöllun verkefnisstjórnar um hvert efnisatriði er að finna í greinargerð verkefnisstjórnar.

Hvað varðar aðra virkjunarkosti gerir verkefnisstjórnin ekki tillögu á þessu stigi um breytingu á þeirri röðun virkjunarkosta sem fram kemur í þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem samþykkt var á Alþingi 14. janúar 2013.

Séráliti skilaði fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem taldi að auk Hvammsvirkjunar hefðu tveir aðrir virkjanakostir í neðri Þjórsá einnig átt að fara úr biðflokki í orkunýtingarflokk.

Á vef rammaáætlunar  www.rammaaaetlun.is  er að finna greinargerð verkefnisstjórnar ásamt þeim umsögnum sem bárust í umsagnarferlinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert