Gefi aurana sína til ABC barnahjálpar

Eyjólfur Árnason.
Eyjólfur Árnason.

Söfnunarátak hófst í morgun á vegum JCI á Íslandi þar sem fólk er hvatt til þess að gefa rafmyntina auroracoin til ABC barnahjálpar. Minnst er á í því sambandi að forsprakkar rafmyntarinnar hafi nýverið gefið hverjum og einum Íslendingi 31,8 aur.

Haft er eftir Eyjólfi Árnasyni, aðstoðarverkefnisstjóra hjá JCI, í fréttatilkynningu frá samtökunum að þeim hafi þótt tilvalið að hvetja Íslendinga til þess að gefa rafmyntina til ABC barnahjálpar. Fyrir nánari upplýsingar er vísað á vefsíðuna www.auragjof.is þar sem meðal annars megi finna leiðbeiningar um það hvernig hægt sé að koma rafmyntinni til hjálparsamtakanna.

Frétt mbl.is: Safna aurum fyrir nýjum leiktækjum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert