Farið yfir samningamál á morgun

Verkfall framhaldsskólakennara hefur staðið yfir í tæpar þrjár vikur.
Verkfall framhaldsskólakennara hefur staðið yfir í tæpar þrjár vikur.

Samninganefnd Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum var kölluð saman til fundar í húsnæði Ríkissáttasemjara klukkan tólf í dag. Þar var farið yfir stöðuna í samningamálum en eins og kunnugt er hefur verkfall framhaldsskólakennara nú staðið í átján daga. Samningagerðin er langt á veg komin en eftir er að ganga frá nokkrum málum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands.

Viðræðunefndin, sem setið hefur í karphúsinu síðustu vikur, telur engu að síður að samningagerðin sé svo langt komin að rétt sé að kynna stöðuna í stærri hópi. Trúnaðarmenn og formenn svæðafélaga FF og FS hafa því verið boðaðir á fund klukkan eitt á morgun. Þar sem viðræður eru nú á viðkvæmu stigi er því miður ekki hægt að veita frekari upplýsingar um stöðuna fyrr en að þeim fundi loknum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert