Útkall vegna slyss í Hrafntinnuskeri

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. mbl.is/Árni Sæberg

Björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagssins Landsbjargar og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kölluð út vegna vélsleðaslyss sem varð í Hrafntinnuskeri í morgun samkvæmt upplýsingum mbl.is. 

Einn maður slasaðist. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Hrafntinnusker er einn áfanga á Laugaveginum, vinsælustu gönguleið landsins.

mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert