Trúnaðarbrot Gunnars í Hæstarétti

Gunnar Þ. Andersen
Gunnar Þ. Andersen mbl.is/Eggert

Málflutningur fer fram í Hæstarétti á morgun í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, og Þórarni Má Þorbjörnssyni, fyrrverandi starfsmanni Landsbankans. Þeir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir fyrir að miðla trúnaðargögnum um alþingismanninn Guðlaug Þór Þórðarson til dagblaðsins DV.

Ríkissaksóknari gaf út ákæru á hendur Gunnari og Þórarni sumarið 2012. Þeir voru ákærðir fyrir brot á þagnarskyldu með því að brjóta bankaleynd. Gunnar var talinn hafa nýtt sér aðstöðu sína til að ná í upplýsingar úr Landsbankanum um fjármál Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í gegnum Þórarin Má. Þeim gögnum var komið til Ársæls Valfells, lektors við Háskóla Íslands, sem aftur kom þeim til DV sem birti frétt byggða á gögnunum.

Gunnar var sakfelldur fyrir alvarlegt trúnaðarbrot þegar hann gegndi stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem hafi það hlutverk að sjá til þess að fjármálastarfsemi í landinu sé í samræmi við lög og reglur. Hann hafi þrátt fyrir það fengið Þórarin til þess að rjúfa þagnarskyldu sem á honum hvíldi og hlutast til um að trúnaðarupplýsingar bærust til fjölmiðla. Um ákveðinn ásetning hafi verið að ræða af hans hálfu.

Þórarinn var sakfelldur fyrir að miðla trúnaðarupplýsingum í starfi sínu hjá fjármálafyrirtæki en tekið fram að ekki hafi komið fram í málinu að hann hafi vitað að þeim yrði komið til fjölmiðils.

Héraðsdómur dæmdi Gunnar til að greiða tvær milljónir króna til ríkissjóðs en Þórarin til að greiða eina milljón króna.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert