Neitaði sök í Stím-máli

Lárus Welding og Óttar Pálsson, verjandi hans.
Lárus Welding og Óttar Pálsson, verjandi hans. mbl.is/Þórður

Fyrirtöku í Stím-málinu svokallaða var í dag frestað til 26. júní næstkomandi að kröfu verjenda. Frestur til að skila greinargerð var framlengdur til 9. september.

Vísað var til þess að málið væri sérlega umfangsmikið og tíma þyrfti til að fara yfir gögn málsins.

Í málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Jóhannes Baldursson, þá framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankastjóri Saga Capital eru ákærðir. Hinir tveir fyrrnefndu fyrir umboðssvik, með því að hafa misnotað aðstöðu sína til lánveitinga og stefnt fjármunum bankans í verulega hættu, en Þorvaldur Lúðvík fyrir hlutdeild í brotinu.

Jóhannes Baldursson mætti við fyrirtökuna og neitaði sök.

Héldu uppi virði hlutabréfa

Eignarhaldsfélagið Stím var stofnað veturinn 2007 og var Glitnir stærsti hluthafi þess. Stím keypti hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir tæplega 25 milljarða króna í nóvember 2007 af Glitni. Kaupin voru að stórum hluta fjármögnuð með láni frá Glitni upp á tæpa 20 milljarða með veði í einungis hlutabréfunum sjálfum.

Upphæð lánsins var hærri en áhættunefnd bankans mátti afgreiða án samþykkis stjórnar en lánveitingin var þó ekki borin upp fyrir stjórnina líkt og skylt var að gera.

Enginn markaður var fyrir bréfin á þeim tíma sem Stím greiddi fyrir þau og er talið að viðskiptin hafi verið til þess gerð að halda uppi virði hlutabréfa í Glitni og FL Group.

Stím-málið hefur verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara frá árinu 2009 og er á meðal þeirra elstu mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert