Gjöf CCP til Reykjavíkur afhjúpuð

Listaverk Sigurðar Guðmundssonar, Heimar í heimi, verður afhjúpað við Reykjavíkurhöfn …
Listaverk Sigurðar Guðmundssonar, Heimar í heimi, verður afhjúpað við Reykjavíkurhöfn á morgun kl. 17:30.

Listaverk sem tölvuleikjaframleiðandinn CCP gefur Reykjavíkurborg verður afhjúpað á morgun, daginn fyrir upphaf hinnar árlegu EVE Fanfest hátíðar. Verkið, Heimar í heimi, er virðingarvottur til þeirra milljóna manna um alla heimsbyggðina sem hafa tekið þátt í þróun og uppbyggingu EVE heimsins, allt frá sköpun hans fyrir um áratug.

Heimar í heimi (e. World Within Worlds) er verk Sigurðar Guðmundssonar. verður staðsett á hafnarkantinum við Rastargötu í Vesturbugt. Þar mun verkið standa a.m.k. til 1. maí 2016 þegar ákvörðun verður tekið með endanlega staðsetningu þess. Verkið er unnið í Kína í granít, stál, steypu og ál og verður fimm metra hátt. Nöfn hundruða þúsunda spilara EVE Online eru rituð í álplötur sem þekja grunn verksins.

Heimur sem stækkar með hverju árinu

EVE heimurinn samanstendur í dag af um 67.000 plánetum, rúmlega 340.000 tunglum og 7.929 sólkerfum – auk hundruðir þúsunda borgara, m.a. yfir 500.000 spilara fjölspilunarleiksins EVE Online. Innan þessa gríðarstóra sýndarveruleika, þar sem eigið hagkerfi þrífst, gerast atburðir dag hvern sem hafa áhrif á hundruðir þúsunda manna í öllum heimsálfum.

Það var árið 2003 sem CCP opnaði fyrir aðgang að EVE heiminum gegnum tölvuleik sinn EVE Online. Síðan hefur EVE heimurinn stækkað með hverju árinu, bæði í umfangi og fjölda borgara, það er spilara leiksins EVE Online. Í fyrra opnaði CCP fyrir aðra gátt inn í heiminn með útgáfu á leiknum DUST 514, sem gaf PlayStation 3 spilurum færi á að verða hluti af EVE heiminum. Milljónir manna hafa spilað leikina tvo síðustu ár.

Þakklætisvottur til Reykjavíkur

Haft er eftir Hilmari Veigari Péturssyni, framkvæmdastjóra CCP, í fréttatilkynningu að fyrirtækið vilji varðveita og heiðra framlag þeirra milljóna manna sem hafa tekið þátt í þróun EVE í 10 ár. 

„Við erum þakklát fyrir það traust sem okkur hefur verið sýnt öll þessi ár og vonumst til að verkið, líkt og EVE Online, muni standast tímans tönn og endast framyfir okkar ævidaga. Verkið er jafnframt þakklætisvottur til Reykjavíkur sem hefur verið hemili okkar síðustu 16 ár, og íbúa borgarinnar sem hafa hjálpað okkur með svo margt í gegnum árin.“

Borgarbúar hafi m.a. sýnt mikla gestrisni í kringum árlega EVE fanfest hátíð, sem hefst á fimmtudag í Hörpu. Þá fyllist miðborgin af spilurum EVE Online og öðrum gestum CCP. „Það var hér í Reykjavík sem við hófum þróun á EVE Online árið 1997 og um helgina fögnum við 10 ára afmæli EVE Fanfest í borginni,“ segir Hilmar Veigar.

90 erlendir blaðamenn væntanlegir

Borgarstjóri Reykjavík mun veita verkinu viðtöku fyrir hönd borgarinnar. Viðstaddir afhjúpunina verða jafnframt Sigurður Guðmundsson listamaður verksins, Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdastjóri CCP og fulltrúar Council of Stellar Management (CSM) sem er lýðræðislega kjörið ráð spilara EVE Online sem hafa áhrif á þróun leiksins.

Rúmlega 90 erlendir blaðamenn eru væntanlegir á EVE Fanfest hátíðina og verða margir þeirra komnir til landsins til að verða vitni af afhjúpun verksins.

Eve Online er heimur sem stækkar með hverju árinu.
Eve Online er heimur sem stækkar með hverju árinu. Mynd/CCP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert