Veita neyðaraðstoð vegna flóðanna

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita þrjár milljónir króna í neyðaraðstoð til Serbíu og Bosníu-Hersegóvínu. Fjármunirnir eru til þess að bregðast við því neyðarástandi sem ríkir á svæðinu vegna flóða eftir mesta úrfelli síðan mælingar hófust árið 1894.

Stór landssvæði eru undir vatni – um 40% lands í Bosníu og Hersegóvínu - en um 15% í Serbíu, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Tugir manns hafi farist af völdum flóðanna og er talið að yfir hundrað þúsund manns hafi hrakist af heimilum sínum eða verið flutt á brott vegna flóðanna.

Þá er yfir milljón manns án drykkjarhæfs vatns og hefst fólk við í neyðarskýlum og bráðabirgðahúsnæði. „Hugur okkar er hjá þeim fjölmörgu sem hafa beðið tjón eða misst ástvini í flóðunum,“ er haft eftir Gunnari Braga í tilkynningunni.

Framlögin munu renna til landsfélaga Rauða krossins á flóðasvæðinu sem sinna hjálparstarfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert