Hreyfiseðlar verða hluti af almennri heilbrigðisþjónustu

Hreyfing er mikilvæg heilsunni
Hreyfing er mikilvæg heilsunni Friðrik Tryggvason

Í dag voru undirritaðir samningar um innleiðingu hreyfiseðla í samræmi við ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um að gera hreyfiseðla hluta af almennri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt tilkynningu er tilraunaverkefni um notkun hreyfiseðla lokið og nú tekur við áætlun um endanlega innleiðingu þessa meðferðarforms hjá heilbrigðisstofnunum um allt land. 

Notkun hreyfiseðla felst í því að læknar geta á formlegan hátt vísað sjúklingum á hreyfingu telji þeir að reglubundin og skipulögð hreyfing geti gagnast þeim sem hluti af meðferð. Þegar mat læknis liggur fyrir tekur svokallaður hreyfistjóri við sem útbýr í samráði við sjúklinginn áætlun um hvers konar hreyfingu hann eigi að stunda, hve oft, hve lengi í einu og af hve mikilli ákefð. Áætlunin tekur mið af áhrifum hreyfingar á þau vandamál sem sjúklingurinn á við að etja. Samkvæmt tilkynningu er það áskilið er að hreyfistjórarnir séu menntaðir sjúkraþjálfarar með að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu.

Innleiðing hreyfiseðla á Íslandi byggist á sænskri fyrirmynd en þetta meðferðarform hefur náð mikilli útbreiðslu þar og víðar um lönd á undanförnum árum og þykir árangursrík. 

Í tilkynningunni kemur fram að við undirritun samninganna í dag sagðist Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra vera viss um að hreyfiseðlarnir eigi eftir að bæta líf margra og jafnframt hvetja fólk og styrkja til þess að taka aukna ábyrgð á heilsu sinni: „Hreyfing er öllum holl og getur hvoru tveggja nýst sem meðferð og forvörn við þeim margvíslegu lífsstílssjúkdómum sem herja á okkur í nútímasamfélaginu. Hjarta- og æðasjúkdómar, lungnasjúkdómar, stoðkerfissjúkdómar, sykursýki, offita, kvíði, þunglyndi og streita. Allt eru þetta sjúkdómar sem valda miklum skaða, skerða lífsgæði fólks og leiða marga til dauða. Allt sem við getum gert til að sporna við þessum sjúkdómum felur í sér ávinning, fyrir einstaklingana sem í hlut eiga og fyrir samfélagið í heild.“

„Hreyfiseðlar í stað lyf­seðla“

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra Júlíus Sigurjónsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert