Réðust á mann á Eiðistorgi

Ljósmynd/Kristinn

Fjórir karlmenn réðust á mann í verslun við Eiðistorgi á Seltjarnarnesi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Þeir spörkuðu ítrekað í höfuð hans og var hann mjög bólginn á eftir. Mennirnir, sem voru handteknir, voru allir ölvaðir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru þeir allir útlendingar, án skilríkja og neituðu að gefa upp nafn.

Voru þeir vistaðir í fangageymslu og er ekki enn vitað hverjir þeir eru.

Sá sem sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild með áverka í andliti. Hann er íbúi þarna skammt frá og kvaðst aldrei hafa séð fjórmenninga áður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert