Kynjasjónarmið grundvalli ákvarðanir

Konum sem flytja til Norðurlandanna ásamt fjölskyldum sínum ætti að …
Konum sem flytja til Norðurlandanna ásamt fjölskyldum sínum ætti að vera veitt dvalarleyfi í eigin nafni svo dvalarleyfi þeirra séu ekki bundin karlmönnum. mbl.is/Eva Björk

Fjárhagsáætlanir ríkis og sveitarfélaga ættu að byggjast á aðferðafræði kynjaðar fjárlagagerðar og kynjasjónarmið ættu að grundvalla fjárhagsákvarðanir og söfnun tölfræðiupplýsinga. Þetta er meðal þess sem kom fram á jafnréttisráðstefnunni Nordiskt Forum.

Ráðstefnunni lauk í gær, sunnudaginn 15. júní. Sex þúsund þátttakendur, þar af 350 frá Íslandi, tóku þátt í umræðum og fundum á ráðstefnunni og 20 þúsund gestir sóttu viðburði ráðstefunnar heim.

Jafnréttisráðherrum Norðurlandanna, þ.á m. Eyglóu Harðardóttur, voru formlega afhentar lokaniðurstöður jafnréttisráðstefnunnar Nordiskt Forum á lokahátíð ráðstefnunnar í gær.

Í þessu lokaskjali eru ráðherrarnir hvattir til að virða sáttmálann sem ríkisstjórnir Norðurlandanna skrifuðu undir á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking 1995. Þar lofuðu ríkisstjórnir landanna að virða kynjasjónarmið í öllu sínu starfi og ákvörðunum.

Hér eru fimm lykilkröfur sem er að finna í lokaskjali Nordiskt Forum:

  • Fjárhagsáætlanir ríkis og sveitarfélaga ættu að byggjast á aðferðafræði kynjaðar fjárlagagerðar, og kynjasjónarmið ættu að grundvalla fjárhagsákvarðanir og söfnun tölfræðiupplýsinga. Fjárlög ættu að hafa jafnrétti að leiðarljósi og jafnréttissjónarmið ættu að vera mikilvæg ríkisstofnunum í starfi sínu við að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

  •  Norrænu ríkisstjórnirnar ættu að fjármagna félagasamtök kvennahreyfingarinnar og stuðla að aukinni norrænni samvinnu og samstöðu, a.m.k. upp að því marki sem starf annarra félagasamtaka er styrkt, svo að femínískar hugmyndir geti haft raunáhrif og fullu jafnrétti sé náð í samfélagi okkar.

  • Konum sem flytja til Norðurlandanna ásamt fjölskyldum sínum ætti að vera veitt dvalarleyfi í eigin nafni svo dvalarleyfi þeirra séu ekki bundin karlmönnum. Þolendum ofbeldis skal ekki vera vísað úr landi. Konum sem seldar hafa verið mansali ætti að vera veitt vernd og aðstoð þegar þær geta eða vilja bera vitni fyrir rétti.

  • Norrænu sveitarfélögin, samtök atvinnurekenda og stéttarfélög ættu að starfa að því að skapa atvinnulíf, sem tekur tillit til fjölskyldulífs og raunvinnuaðstæðna, og skapa mannsæmandi starfskjör. Réttur til að vinna fullt starf ætti að vera tryggður með lagasetningu eða samþykktum í löndum þar sem algengt er að konur neyðast til að vinna í hlutastarfi. Fylgjast ætti vel með og vinna reglugerðir til að koma í veg fyrir misnotkun á starfsmönnum í ótryggum starfsgreinum þar sem tímabundnar ráðningar og lausráðningar eru algengar.

  • Norræn yfirvöld ættu að starfa að því að konur taki fullan þátt í umhverfisverndarstarfi, sem aktívistar, frumkvöðlar, skipuleggjendur, kennarar, leiðtogar og sendiherrar fyrir sjálfbæra þróun. Styrkir sem veittir eru til umhverfismála ættu alltaf, þar sem þörf er á, að hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert