Prinsessan skoðaði Hörpu

Viktoría krónprinsessa og eiginmaður hennar, Daníel prins, heimsóttu Hörpu nú rétt fyrir hádegi ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands og konu hans, Dor­rit Moussai­eff.  Þar fræðast þau um íslenskt tónlistarlíf og menningu. 

Með þeim í för er emb­ætt­is­menn sænsku hirðar­inn­ar og ut­an­rík­isþjón­ust­unn­ar. Um er að ræða tveggja daga heim­sókn sem hófst form­lega með fundi krón­prins- og for­seta­hjón­anna á Bessa­stöðum.

Dag­skrá heim­sókn­ar­inn­ar er vel skipu­lögð eins og mbl.is hef­ur greint frá þar sem meðal  fundur um viðskipta­tengsl land­anna í Nor­ræna hús­inu og skoðun og fræðslu um Hell­is­heiðar­virkj­un, farið í hvala­skoðun, skoðun­ar­ferð til Mý­vatns og á málþing um sam­vinnu á norður­slóðum við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri. 

Form­legri heim­sókn lýk­ur að kvöldi 19. júní í Reykja­vík. Með heim­sókn Vikt­oríu krón­prins­essu munu all­ir rík­is­arfar Norður­landa hafa sótt Ísland heim.

Frétt mbl.is: Prinsessan á Bessastöðum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert