160 óku of hratt á Gullinbrú

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Brot 160 ökumanna voru mynduð á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í norðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 457 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu og níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert