Bæjarráð Fjallabyggðar hefur ákveðið að Sigurður Valur Ásbjarnarson verði ráðinn áfram sem bæjarstjóri Fjallabyggðar á kjörtímabilinu sem nú er hafið en hann gegndi starfinu á síðasta kjörtímabili.
Fram kemur á fréttavefnum Héðinsfjörður.is að Sigurður hafi verið fenginn til þess að gegna stöðunni tímabundið eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor þar til meirihlutinn tæki ákvörðun um framhaldið. Gert er ráð fyrir að ráðningarsamningur við Sigurð verður lagður fram á bæjarstjórnarfundi 8. júlí.