Göngumanns leitað í Hoffellsdal

Björgunarsveitarmaður á gangi.
Björgunarsveitarmaður á gangi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarfélag Hornafjarðar grennslast nú fyrir um erlendan göngumann er fór frá Hoffelli á miðvikudag en skilaði sér ekki á áfangastað í dag. Kona hans náði sms sambandi við hann fyrr í dag og sagðist hann þá vera orðinn kaldur og hrakinn og í framhaldinu óskaði hún eftir aðstoð björgunarsveita.

Maðurinn gat ekki gefið upp nákvæma staðsetningu, en sagðist staddur við á sem hann treysti sér ekki yfir. Hann var kominn í álpoka til að halda í sér hita og reyndi að koma yfir sig tjaldi.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að reynt hafi verið að senda manninum s.k. „rescue me“ textaskilaboð, sem senda nákvæma staðsetningu til baka ef þeim er svarað. Það hefur þó ekki borið árangur og ekki heyrst frekar frá manninum.

„Upplýsingar mannsins um ána gefa því miður ekki nægilega góðar vísbendingar þar sem mikil úrkoma hefur verið á svæðinu undanfarna daga og miklir vatnavextir í ám og lækjum,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

Björgunarfélagið byrjar á að kanna Hoffellsdal en finnist maðurinn ekki þar verða fleiri björgunarsveitir kallaðar til leitar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert