Mannvit flytur höfuðstöðvarnar í Kópavog

Urðarhvarf 6 í Kópavogi. Byggingin er öll hin glæsilegsata. Þar …
Urðarhvarf 6 í Kópavogi. Byggingin er öll hin glæsilegsata. Þar er m.a. að finna líkamsræktarstöð og fullkomið eldhús. Þórður Arnar Þórðarson

Verkfræðistofan Mannvit mun í næstu viku flytja alla starfsemi sína í Urðarhvarf 6 í Kópavogi.

Um er að ræða átta hæða skrifstofuhús og mun Mannvit leigja allar hæðirnar, að frátalinni þeirri efstu og hálfri annarri næstefstu hæðinni.

Spurður um ástæður flutninganna segir Skapti Valsson, aðstoðarforstjóri Mannvits, í Morgunblaðinu í dag, að  fyrirtækið sé fyrst og fremst horfa til þess að geta verið á einum stað.

Mannvit er með um 350 starfsmenn á Íslandi og erlendis. Það hélt upp á 50 ára afmæli í ár. Mannvit er nú í þremur húsum í Reykjavík, Ármúla 42, Grensásvegi 1 og á Grensásvegi 11, auk starfsstöðva á landsbyggðinni og erlendis.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert