Umboðsmaður vill svör frá Hönnu Birnu

Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis óskar eftir upplýsingum frá Hönnu Birnu …
Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis óskar eftir upplýsingum frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um samskipti hennar við Stefán Eiríksson.

Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis ritaði í dag Hönnu Birnu Kristjánsdóttur bréf með ósk eftir tilteknum upplýsingum um samskipti hennar við Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, vegna lögreglurannsóknar sem embætti hans vann að og beindist að meðferð trúnaðarupplýsinga í innanríkisráðuneytinu.

Þetta kemur fram á vefsíðu umboðsmanns Alþingis. Í bréfinu, sem þar er birt, segir að Tryggvi hafi í kjölfar umfjöllunar DV í gær rætt við bæði Stefán og Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara. Í kjölfarið ákvað hann að óska eftir eftirfarandi upplýsingum frá Hönnu Birnu:

  1. Hvort hún hafi að eigin frumkvæði óskað eftir að lögreglustjórinn kæmi til viðtals eða fundar í ráðuneytinu, þar sem hún hafi rætt við hann um rannsóknina sem embættið vann að á sama tíma. Umboðsmaður óskar eftir að fram komi í svari ráðherra hvert tilefni þessara funda var, hvenær þeir fóru fram og að Hanna Birna lýsi hvað kom þar fram af hennar hálfu í samtali við Stefán um rannsóknina og starfshætti lögreglu. Einnig óskar hann þess að tiltæk gögn um þessi samskipti verði send.

  2. Með sama hætti óskar Tryggvi eftir upplýsingum um símtöl sem Hanna Birna kunni að hafa átt við Stefán um lögreglurannsóknina. Óskað er eftir því að fram komi hvenær símtölin fóru fram, hvert tilefni þeirra var og hvað kom þar fram af hálfu Hönnu Birnu um rannsóknina. Umboðsmaður óskar þess að innanríkisráðherra sendi honum tiltæk gögn um þessi símtöl.

Á eftir að taka afstöðu um formlega athugun

„Ég tek það fram að beiðni mín um þessar upplýsingar er sett fram til þess að ég geti tekið afstöðu til þess hvort ég tek mál þetta til formlegrar athugunar,“ segir Tryggvi í bréfinu og vísar í reglur og sjónarmið sem talin eru eiga við um samskipti ráðherra, sem fer með yfirstjórn lögreglu, við stjórnendur lögregluembætta og með tilliti til sjálfstæðis þeirra embætta og ákæruvalds við rannsókn sakamála.

„Það á sérstaklega við þegar umrædd rannsókn tengist málefnum ráðuneytis viðkomandi ráðherra,“ segir í bréfinu. Þess er óskað að innanríkisráðherra svari fyrirspurninni eigi síðar en 15. ágúst.

DV fullyrti í gær að Stefán Eiríksson hætti störfum sem lögreglustjóri vegna afskipta Hönnu Birnu af rannsókninni á lekanum úr innanríkisráðuneytinu. Sjálfur hefur Stefán ekki viljað tjá sig um málið að öðru leyti en því að hann hætti ekki vegna þrýstings, eins og hann sagði í samtali við mbl.is. Hann hefur hinsvegar ekki viljað segja af eða á um það hvort innanríkisráðherra hafi haft afskipti af rannsókninni.

mbl.is náði ekki tali af Hönnu Birnu í gær vegna málsins.

Umboðsmaður Alþingis ræddi við bæði Stefán Eiríksson fráfarandi lögreglustjóra og …
Umboðsmaður Alþingis ræddi við bæði Stefán Eiríksson fráfarandi lögreglustjóra og Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara vegna málsins.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert