Gleðiganga Hinsegin daga og hátíðahöld henni tengd fara fram á morgun, laugardaginn 9. ágúst.
Gangan leggur af stað frá Vatnsmýrarvegi (nálægt BSÍ) stundvíslega kl. 14 og að henni lokinni hefst hátíðardagskrá við Arnarhól sem stendur til kl. 17:30. Í tengslum við hátíðina er búist við miklum fólksfjölda í miðborginni og óhjákvæmilega verða þar raskanir á bílaumferð, segir í fréttatilkynningu.
Götur verða lokaðar í kringum gönguleiðina og hátíðasvæðið frá kl. 12 á hádegi og þar til hátíðardagskrá við Arnarhól lýkur (sjá kort í viðhengi hér að neðan).
„Íbúar Reykjavíkur og gestir eru beðnir að sýna samstarfsvilja og umburðarlyndi og hvattir til að nýta sér þjónustu Strætó,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Einnig er bent á bílastæðahúsin.
Nánari upplýsingar á www.reykjavikpride.com.