Óvissustig vegna Bárðarbungu

Vatnajökull. Myndin er úr safni.
Vatnajökull. Myndin er úr safni. mbl.is/Rax

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Hvolsvelli og Húsavík ákveðið að lýsa yfir óvissustigi vegna jarðhræringa í Bárðarbungu á Vatnajökli.

Frá því í nótt hefur verið viðvarandi jarðskjálftahrina í Bárðarbungu sem stendur enn yfir. Jarðvísindamenn og viðbragðsaðilar hafa verið upplýstir og fylgjast vel með framvindu mála, að því er segir í tilkynningu.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarrás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Frétt mbl.is: Skjálftahrina við Bárðabungu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert