Skjálfti upp á 5,1 í Bárðarbungu

Jarðskjálfti af stærðinni 5,1 varð suðaustur af Bárðarbungu klukkan 16:19 að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Skjálftavirkni er enn mjög mikil, rúmlega 700 skjálftar hafa mælst frá miðnætti.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir í stöðuskýrslu að virknin þokist áfram til norðurs og sé að mestu á 10 km löngu bili, með miðju undir jökuljaðrinum.

Klukkan 20:39 í gærkvöldi mældist skjálfti af stærðinni 5 í Bárðarbunguöskjunni, en síðan hafa ekki orðið stórir skjálftar þar. Berggangurinn undir Dyngjujökli er nú talinn vera um 35 km langur. Líkanreikningar byggðir á GPS-mælingum benda til að um 300 milljón rúmmetrar af kviku séu í ganginum. GPS-mælum verður bætt við norðan við Vonarskarð og á Urðarhálsi á næstu dögum.

Tekið er fram að engar vísbendingar séu um að dregið hafi úr ákafa atburðanna. Ekki sé hægt að segja til um það á þessari stundu hvert framhaldið verður. Þrír möguleikar eru taldir líklegastir:

  • Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til eldgoss.
  • Gangurinn nái til yfirborðs og eldgos hefjist. Líklegast er að það verði við norðurenda gangsins. Þá er líklegast að verði hraungos með nokkurri sprengivirkni.
  • Gangurinn nái til yfirborðs og eldgos hefjist en verulegur hluti eða öll sprungan verði undir Dyngjujökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir t.d. gos í Bárðarbunguöskjunni en líkur á því eru mun minni á þessari stundu.

Lokanir eru í gildi á hálendinu norðan Vatnajökuls. Búið er að opna Hólsfjallaveg (F864) austan Jökulsársgljúfurs frá þjóðvegi 1 að vegi 85. Einnig er búið að opna fyrir umferð inn í Ásbyrgi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert