Berggangurinn veldur verulegum spennubreytingum

Flug með landhelgisgæslunni yfir mögulegt gossvæði.
Flug með landhelgisgæslunni yfir mögulegt gossvæði. Þórður Arnar Þórðarson

Berggangurinn undir Dyngjujökli er talinn vera rúmlega 40 km langur og benda líkanreikningar til að hann hafi valdið verulegum spennubreytingum á stóru svæði, m.a. til norðurs sem gæti skýrt skjálftavirkni í Öskju. Skjálftavirkni er enn mjög mikil og hafa rúmlega 700 skjálftar mælst frá miðnætti.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram: 

  • Skjálftavirkni er enn mjög mikil, rúmlega 700 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Virknin er nú að mestu utan jökuls og hefur þokast u.þ.b einn km til norðurs frá því í gær.
  • Klukkan 00:16 mældist skjálfti af stærðinni 5,3 í Bárðarbunguöskjunni,  kl. 02:50 mældist annar stór skjálfti af stærðinni 5,2 á svipuðum slóðum. Klukkan 01:52 mældist skjálfti af stærðinni 4,5 austantil í Öskju og hefur dálítil smáskjálftavirkni fylgt í kjölfarið.
  • Berggangurinn undir Dyngjujökli er nú talinn vera rúmlega 40 km langur. Líkanreikningar byggðir á GPS mælingum benda til þess að rúmmálsaukningin síðasta sólarhringinn sé rúmlega 20 milljónir rúmmetra.
  • Líkanreikningar benda til að berggangurinn hafi valdið verulegum spennubreytingum á stóru svæði, m.a. til norðurs sem gæti skýrt skjálftavirkni í Öskju. 
  • Engar vísbendingar eru um að dragi úr ákafa atburðanna. 
  • Framvegis verða daglegar stöðuskýrslur ekki sendar út síðdegis nema umtalsverðar breytingar verði. Niðurstaða fundar vísindamannaráðs Almannavarna (upplýsingablað) verður áfram gefin út um hádegið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert