Nýjar sprungur við Bárðarbungu?

Greinilegar sprungur eru í jöklinum.
Greinilegar sprungur eru í jöklinum. Ljósmynd/Ómar Ragnarsson

Ómar Ragnarsson telur að nýjar nýjar íssprungur séu að koma í ljós á suðvesturhluta Bárðarbungu. Hann flaug yfir bunguna í hádeginu í gær. Hann telur einnig að aðrar sprungur séu að stækka. 

Ómar segir að segir að jarðhræringarnar við Bárðarbungu minni svolítið á Kröflueldana á sinni tíð þegar skjálftar og órói færðust sitt á hvað til suðurs eða norðurs og enginn vissi hvar jarðeldur myndi koma upp.

„Níu sinnum kom upp kvika, en aðeins einu sinni í suður og þá í einhverri mestu mýflugumynd sem eldfjallasaga jarðar kann að geyma. En enginn veit hve litlu munaði þá að gos í Bjarnarflagi og þar suður af yrði stærra og meira.   

Þess vegna er nauðsynlegt að útiloka ekki neinn af þeim möguleikum, sem þarna eru og geta leitt stórflóð niður í fern vatnasvið hið minnsta, suður í Grímsvötn, suðvestur í Köldukvísl og niður Tungnaá og Þjórsá, niður í Skjálfandafljót eða niður í vatnasvið Jökulsár á Fjöllum,“ segir Ómar á blogg-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert