38,5% styðja ríkisstjórnina

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. mbl.is/Golli

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 38,5% samkvæmt nýrri könnun sem MMR framkvæmdi á fylgi stjórnmálaflokka og stuðningi við ríkisstjórnina. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 26,6%, fylgi Samfylkingarinnar mælist 20,3% og Framsóknarflokkurinn mælist með 10,1% fylgi.

Könnunin var framkvæmd dagana 25. til 28. ágúst 2014 og var heildarfjöldi svarenda 945 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Fram kemur, að stuðningur við ríkisstjórnina mældist 36,2% í síðustu mælingu (sem lauk þann 31. júlí s.l.) og 38,0% í lok júní s.l. (lauk 23. júní).

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 26,6%, borið saman við 24,2% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 20,3%, borið saman við 17,0% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mælist nú 17,6%, borið saman við 19,2% í síðustu könnun. Fylgi Pírata mælist nú 10,3%, borið saman við 9,6% í siðustu könnun. Framsóknarflokkurinn mælist með 10,1% fylgi, borið saman við 11,8% í síðustu könnun. Vinstri-græn mælast nú með 9,6% fylgi, borið saman við 11,6% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Nánari upplýsingar á heimasíðu MMR.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert