Sigmundur flytur stefnuræðu í kvöld

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flytur stefnuræðu sína í kvöld.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flytur stefnuræðu sína í kvöld. Ómar Óskarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun flytja stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld og fara fram umræður um hana í kjölfarið.

Umræðan hefst kl. 19:40 og verður henni útvarpað og sjónvarpað.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur, að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: 

  • Framsóknarflokkur, 
  • Samfylkingin, 
  • Vinstri hreyfingin – grænt framboð, 
  • Sjálfstæðisflokkur, 
  • Björt framtíð, 
  • Píratar.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og dómsmálaráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis, Katrín Júlíusdóttir, 11. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri og Kristján L. Möller, 7. þingmaður Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Steinunn Þóra Árnadóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Steingrímur J. Sigfússon, 4. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 3. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Björt Ólafsdóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Brynhildur S. Björnsdóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Pírata tala Jón Þór Ólafsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð og Birgitta Jónsdóttir, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert