Rangæingar báru sigur úr býtum

Ljósmynd/ ruv.is

Rangárþing ytra hafði betur í Útsvari á RÚV í kvöld gegn Dalvíkurbyggð. Sigurinn hafðist á lokasprettinum og stóðu Rangæingar uppi með 66 stig gegn 41 stigi Dalvíkinga.

Var þetta í fyrsta skipti sem Rangárþing ytra tekur þátt í spurningaþættinum Útsvari. Í næstu viku mæta Reykvíkingar liði Reykjanesbæjar, en þeir fyrrnefndu eiga Útsvarsmeistaratitil síðasta árs að verja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert