5 kíló ekki mikill farangur

Töskugjald WOW Air hefur mælst illa fyrir.
Töskugjald WOW Air hefur mælst illa fyrir. Herman Wouters

Á vefnum Túristi.is má finna leiðbeiningar um hvernig fólk getur pakkað fimm kílóum í handfarangur til að komast hjá nýju töskugjaldi WOW Air.

Eins og gefur að skilja eru fimm kíló ekki mikill farangur, sérstaklega þegar litið er til þess að léttustu töskur á markaðnum eru 1,6 kíló, þriðjungur af þyngdinni, sem skilur ekki eftir nema 3,4 kíló fyrir farangur.

Á vefsíðunni er upptalning á (mjög) einföldum hlutum, sem samtals vega innan við fimm kíló. Skópar og fartölva taka strax helminginn af þeim fimm kílóum sem eru í boði, en léttari hlutir eins og tannbursti og tannkrem láta minna fyrir sér fara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert