Heilsusalt með minna natríum

Tilraunastofa Arctic Sea Minerals er í skemmu á gamla varnarsvæðinu …
Tilraunastofa Arctic Sea Minerals er í skemmu á gamla varnarsvæðinu á Ásbrú. Ljósmynd/Artic Sea Minerals

Framleiðsla heilsusalts er í undirbúningi hjá nýsköpunarfyrirtækinu Arctic Sea Minerals í Reykjanesbæ.

Fyrirtækið hefur unnið að því undanfarin tvö ár að þróa nýja lausn til að draga úr natríumnotkun en venjulegt borðsalt er um 40% natríum.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að nýja lausnin hjá Arctic Sea Minerals felst í því að kristalla öll söltin í nýju blöndunni saman í eitt saltkorn. Þegar það er gert þá er hægt að búa til ný saltkorn sem hafa allt að 58% minna natríum en venjulegt borðsalt, en svipað saltbragð og neytendur eru vanir að upplifa.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert