Langt á milli manna í deilunni

Fundað var í dag í kjaradeildu tónlistarskólakennara hjá Ríkissáttasemjara í dag. Að sögn formanns félags tónlistarskólakennara er langt á milli manna er kemur að lausn deilunnar.

„Viðræður eru alla vega í gangi en það er langt á milli manna. Nú setjumst við aðeins niður um helgina í sitt hvoru lagi og förum yfir málið,“ segir Sigrún Grendal formaður félags tónlistarskólakennara í samtali við mbl.is.

Næsti fundur í deilunni hefur verið boðaður á mánudaginn. 

Ef ekki tekst að semja munu kennarar og mill­i­stjórn­end­ur í rúm­lega átta­tíu tón­list­ar­skól­um um landið leggja niður störf 22. októ­ber. Alls eru um 550 manns í fé­lag­inu en nokkr­ir af þeim eru skóla­stjórn­end­ur sem fara ekki í verk­fall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert