Bannað að beita hross harðýgi

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Sigurður Aðalsteinsson

Út er komin reglugerð um velferð hrossa byggð á nýjum lögum um velferð dýra auk laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Eldri reglugerð um aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa fellur þar með úr gildi.

Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja velferð og heilbrigði hrossa með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Í anda hinna nýju laga um dýravelferð er sérstaklega er tekið fram að leitast skuli við að hross geti lifað í samræmi við sitt eðlilega atferli eins og framast er kostur. Þá er undirstrikað að reglugerðin tilgreini lágmarkskröfur um einstök atriði.

Meðal nýmæla má nefna að tiltekin atvinnustarfsemi sem og stórmót eru nú tilkynningaskyld til Matvælastofnunar þó að enn gildi sú meginregla að sömu kröfur eru gerðar til allra hrossa um meðferð, umsjá og aðbúnað.

Bannað er að beita hross harðýðgi eða annarri illri meðferð. Harðýðgi er skilgreint sem gróf valdbeiting, svo sem barsmíðar en einnig fellur undir það að þrengja að blóðrás til heila (hengja), snúa hross niður á eyrum, uppgefa hross eða gefa þeim rafstuð. Þá er kveðið á um að ekki megi nota búnað eða aðferðir við tamningu, þjálfun, keppni eða sýningar sem valda hrossum skaða eða óþarfa ótta. Þannig er óheimilt að þvinga hross í höfuðburð með búnaði sem gefur ekki eftir eða  uppgefa hross með þvingunum. Notkun á mélum með tunguboga og vogarafli er bönnuð í hvers kyns keppni og sýningum. Eins og áður er skýrt kveðið á um að aðeins megi nota heilbrigð hross í góðri þjálfun til keppni eða sýninga.

Í reglugerðinni eru ákvæði um aðgerðir á hrossum sem aðeins má framkvæma af læknisfræðilegum ástæðum og á það m.a. við um tannraspanir. Sársaukafullar aðgerðir má aðeins framkvæma með tilhlýðilegri deyfingu eða svæfingu. Einnig er kveðið á um hvernig megi aflífa hross.

Við mat á fóðrun hrossa er áfram byggt á holdastigum. Eigendur eða umsjónarmenn hrossa bera ábyrgð á að þau séu í hæfilegum holdum miðað við notkun og árstíma. Skýrt er kveðið á um að holdastig undir 2 (horaður), teljist til illrar meðferðar. Einnig skal koma í veg fyrir að hross verði of feit vegna aukinnar sjúkdómahættu. Ekki er heimilt að svelta hross til að ná því markmiði.

Kröfur um aðbúnað hrossa taka mið af félagslegum og líkamlegum þörfum þeirra, slysavörnum og smitvörnum. Ekki er um miklar breytingar að ræða frá fyrri reglugerð en helst má nefna að hesthús framtíðarinnar verða alla jafna með stærri útigerði. Eins og áður verður bannað að halda hross á básum. Þá er aukin áhersla á smitvarnir í hesthúsum, þjálfunarstöðvum og á stórmótum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert