Snjóþoturnar teknar fram

Það má slá því föstu að smáfólk á höfuðborgarsvæðinu hafi fagnað snjónum sem blasti við í morgun eftir ofankomu í nótt. Krakkar í Krikaskóla í Mosfellsbæ voru í það minnsta alsæl með snjóinn og að fá leika sér með snjóþotur sem voru teknar fram eftir að hafa verið í geymslu yfir sumarið. Frekari snjókoma er þó ekki í kortunum á næstu dögum og því er um að gera að nýta snjóinn á meðan hægt er.

mbl.is kom við í Krikaskóla í morgun þar sem var mikið fjör í brekkunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert