Ríkissaksóknari rannsakar meintan leka

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. mbl.is/Þórður

Ríkissaksóknari ætlar að taka til rannsóknar ætluð brot vegna leka trúnaðargagna um samkeppnismál til Kastljóss. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Kastljós fjallaði um kæru Samkeppniseftirlitsins til embættis sérstaks saksóknara vegna meintra samkeppnislagabrota Eimskips og Samskipa í síðustu viku. Þar kom fram að Samkeppniseftirlitið hefði kært ellefu starfsmenn fyrirtækjanna tveggja til sérstaks saksóknara auk þess sem meintum brotum var lýst. 

Eim­skip sagði í gær að búið væri að kæra leka á rannsóknargögnum til lögreglu, en félagið segir að lekinn hafi skaðað ímynd fé­lags­ins. 

„Leki á trúnaðargögn­um skráðra fé­laga varðar við lög um verðbréfaviðskipti. Eim­skipa­fé­lagið hef­ur nú óskað eft­ir því við Kaup­höll Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið að skoðuð verði viðskipti með bréf fé­lags­ins á þeim tíma sem það hef­ur verið til skoðunar hjá Sam­keppnis­eft­ir­lit­inu. Jafn­framt hef­ur fé­lagið kært lek­ann til lög­reglu,“ sagði Eimskip í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert