Sveitarfélögin vilja breytingar

Sigrún Grendal og félagar í FT fylktu liði í Karphúsið …
Sigrún Grendal og félagar í FT fylktu liði í Karphúsið fyrr í mánuðinum og hugðust afhenda þar ályktun. mbl.is/Árni Sæberg

„Er verkfallið okkar kannski kærkomin búbót fyrir sveitarfélögin í lok fjárhagsárs?“ spyr Sigrún Grendal Jóhannsdóttir, formaður Félags tónlistarskólakennara, FT, en félagsmenn hafa verið í verkfalli síðan á miðvikudaginn í síðustu viku.

Fundur félagsins og samninganefndar sveitarfélaganna í gær bar engan árangur. Félagið er eitt aðildarfélaga Kennarasambands Íslands og fer fram á sömu hækkanir og félagsmenn annarra félaga sambandsins hafa fengið á undanförnum mánuðum.

Í umfjöllun um deiluna í Morgunblaðinu í dag segir formaður samninganefndar sveitarfélaganna ljóst, að engar slíkar hækkanir verði nema FT sé reiðubúið til svipaðrar endurskoðunar og einföldunar á kjarasamningum og vinnuumhverfi og gerðar hafa verið á samningum Félags grunnskólakennara.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert