Sprengingarnar heyrðust í þingsal

Frá mótmælunum í kvöld. Um 150 manns eru enn við …
Frá mótmælunum í kvöld. Um 150 manns eru enn við Austurvöll. mbl.is/Júlíus

Flugeldum var skotið upp yfir Austurvöll fyrir fáeinum mínútum. Virðist flugeldunum hafa verið skotið upp frá Fógetagarðinum og heyrðust sprengingarnar inn í þingsal þar sem þingfundur fer nú fram.

Enn er fjölmennt við Alþingishúsið og heyrist vel í mótmælendum sem berja reglulega í girðingar og kyrja ýmis slagorð. Fyrr í kvöld voru mótmælendur með blys í skaranum en mótmælin hafa þó farið friðsamlega fram.

Mótmælin við Austurvöll.
Mótmælin við Austurvöll. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert