Mannanafnanefnd kom saman fyrir helgi og samþykkti nokkur nöfn. Á meðal þeirra er kvenkyns eiginnafnið Eldþóra, millinafnið Skjöld og föðurkenningin Franksdóttir. Að því sögðu er ekkert því til fyrirstöðu að karlmaðurinn Frank nefni dóttur sína Eldþóru Skjöld Franksdóttur.
Einnig voru karlmannsnöfnin Brímir og Rex samþykkt og kvenmannsnöfnin Selena, Lilly og Angelía.