Lítil loftgæði á höfuðborgarsvæðinu

Gosmengunarský yfir Reykjavík. Mynd úr safni.
Gosmengunarský yfir Reykjavík. Mynd úr safni. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Loftgæði mældust víða lítil fyrir viðkvæma um sexleytið í morgun, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Í Hveragerði mældist gildi brennisteinsdíoxíðs 1831 µg/​m³ í morgun.

Í dag er búist við froststillu á gosstöðvunum. Við slíkar aðstæður eru auknar líkur á háum styrk mengunar. Einkum suðvestantil fyrripart dags.

Á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði voru gildin 739 µg/​m³, í Dalssmára í Kópavogi 1468 µg/​m³, í Norðlingaholti í Reykjavík 1116 µg/​m³ og í Grafarvogi í Reykjavík 1772 µg/​m³ um sexleytið í morgun. 

Þegar gildin mælast frá 600 upp í 2.000 eru einkenni frá öndunarfærum líkleg hjá einstaklingum með undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma en lítil vandamál ættu að vera hjá heilbrigðum. 

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Auknar líkur á háum styrk mengunar

Samkvæmt spákorti Veðurstofu Íslands fyrir daginn í dag vegna mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni má gera ráð fyrir að mengunin nái til allra landshluta. Myndin fylgir fréttinni. 

Í dag er búist við froststillu á gosstöðvunum. Við slíkar aðstæður eru auknar líkur á háum styrk mengunar. Einkum suðvestantil fyrripart dags.

Þegar kemur fram á daginn má búast við sunnan og suðvestan andvara og eru því mestar líkur á mengun á svæðunum norðan og austan við eldstöðina, en gosmóða gerir þó væntanlega vart við sig víðar um land.

Á morgun berst gasmengun frá eldgosinu til norðurs og austurs. Gæti orðið vart við mengun frá Eyjafirði austur og austur á Firði.

Uppfært kl. 07:15

Klukkan 7 höfðu gildin ýmist farið hækkandi eða lækkandi.  Í Hveragerði mældist gildi brennisteinsdíoxíðs 1186 µg/​m³ sem er nokkru lægra en klukkan 7 í morgun. 

Á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði voru gildin 7832 µg/​m³, eða hærri en í morgun, í Dalssmára í Kópavogi 1459 µg/​m³, svipað og í morgun, í Norðlingaholti í Reykjavík 1110 µg/​m³, svipað og í morgun, og í Grafarvogi í Reykjavík 1770 µg/​m³, einnig svipað og í morgun. 

Á Gröf við Grundartanga mældust gildin 1044 µg/​m³.

Veðurstofa Íslands.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert