Ráðist á skokkara við Rauðavatn

Rauðavatn.
Rauðavatn. mbl.is/Júlíus

Tilkynnt var um líkamsárás við Rauðavatn í Reykjavík á áttunda tímanum í morgun. Að sögn Kristjáns Inga Kristjánssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns varð ung kona fyrir árásinni.

Enginn hefur verið handtekinn í málinu að sögn Kristjáns. Farið var með konuna á Landspítala til aðhlynningar og var síðan tekin af henni skýrsla.

Samkvæmt heimildum mbl.is var konan ein að skokka þegar ráðist var á hana, en talið er að árásarmennirnir hafi verið tveir eða fleiri.

Málið er nú í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert