Óska umsagna um frumvarp um staðgöngumæðrun

Wikipedia

Drög að frumvarpi til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni hafa verið birt til umsagnar. Frumvarpið er samið af starfshópi sem velferðarráðherra skipaði til verksins haustið 2012 í samræmi við ályktun Alþingis. Frestur til að skila umsögnum er til 2. desember.

Samkvæmt frumvarpinu verður staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni heimiluð að tilteknum skilyrðum uppfylltum en bann lagt við staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni.

Frumvarpið skiptist í eftirtalda átta kafla;

  1. Almenn ákvæði
  2. Skilyrði staðgöngumæðrurnar í velgjörðarskyni
  3. Meðferð og úrlausn mála um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni
  4. Fæðing barns og yfirfærsla á foreldrastöðu
  5. Réttur barns til að þekkja uppruna sinn
  6. Bannákvæði og refsingar
  7. Ýmis ákvæði
  8. Breytingar á öðrum lögum

 Kristrún Heimisdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri leiddi starf hópsins til mars 2014 en þá tók Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík við formennsku. Aðrir nefndarmenn eru Hrefna Friðriksdóttir, dósent við Háskóla Íslands og Sigurður Kristinsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Starfsmaður hópsins er Laufey Helga Guðmundsdóttir lögfræðingur. Með hópnum starfar einnig Svanhildur Þorbjörnsdóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneyti.

Starfshópurinn mun fara yfir þær umsagnir sem berast og mögulega gera breytingar á frumvarpsdrögunum vegna þeirra. Áætlað er að skila heilbrigðisráðherra frumvarpinu fullbúnu af hálfu nefndarinnar um miðjan janúar 2015.

Umsagnir skal senda með tölvupósti á netfangið; postur@vel.is og rita í efnislínu: Umsögn um frumvarp til laga um staðgöngumæðrun.

Hér má lesa lagafrumvarpið í  heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert