Bætti við ókeypis daðurnámskeiði

Julien Blanc í viðtali á CNN í fyrradag.
Julien Blanc í viðtali á CNN í fyrradag. Skjáskot af CNN.com

Fyrirtækið Real Social Dynamics, sem stendur fyrir komu „stefnumótaþjálfarans“ Julien Blanc til landsins næsta sumar hefur nú bætt við ókeypis námskeiði í hvernig taka eigi konur á löpp. 

Síðasta sólarhring hafa yfir 9300 manns skrifað undir áskorun á íslensk stjórnvöld um að hleypa Blanc ekki til landsins. Aðferðir hans þykja afar niðrandi fyrir konur auk þess sem orð hans og aðgerðir þykja oft hvetja til ofbeldis gegn konum.

Fyrr í dag var einungis svokallað „bootcamp“ í boði á vefsíðu Real Social Dynamics en það er ströng þjálfun sem inniheldur meðal annars sýnikennslu og þjálfun þar sem nemendur reyna fyrir sér í raunheiminum. Skráningargjald í slíkt námskeið er 500 dalir eða rúmar 60 þúsund krónur en heildar þátttökugjald er 2000 dalir eða tæpar 250 þúsund krónur. Námskeiðið mun standa yfir í þrjá daga, frá 11. til 13 nóvember, verði af því.

Nú hefur hinsvegar bæst við þriggja klukkustunda „vinnustofa“ þann 11.júní, þátttakendum að kostnaðarlausu að undanskyldu 25 dala (3000 króna) skráningargjaldi sem fæst endurgreitt við mætingu.

Markmið vinnustofunnar, samkvæmt vefsíðu fyrirtækisins, eru m.a. að fylla höfuð þátttakenda af leyndarmálum um velgengni í kvennamálum, skemmta þeim og hneyksla og veita nothæfa þekkingu. 

Nýlega komu áströlsk stjórnvöld í veg fyrir að Blanc héldi námskeið í landinu og í kjölfarið hafa sprottið upp und­ir­skrift­arlist­ar gegn komu hans til Eng­lands, Kan­ada, Bras­il­íu og nú Íslands.

Tengdar fréttir:
„Borgaðu mér og nauðgaðu þeim öllum“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert