Leita enn lausna um byssurnar

Þýska fyrirtækið Heckler & Koch framleiðir MP5-hríðskotabyssurnar, sem lögreglumenn um …
Þýska fyrirtækið Heckler & Koch framleiðir MP5-hríðskotabyssurnar, sem lögreglumenn um allan heim nota.

Hríðskotabyssurnar umdeildu sem Landhelgigæslunni bárust frá Norðmönnum liggja enn óhreyfðar á Keflavíkurflugvelli. Að sögn upplýsingafulltrúa Gæslunnar er enn reynt að finna lausn á málinu og standa viðræður við norska ráðamenn yfir. Þær eru enn geymdar í vopnageymslu Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli.

Tollstjóri innsiglaði vopnin í lok október á þeirri forsendu að ekki væri búið að greiða af þeim tilskilin gjöld og tolla. Um er að ræða 250 hríðskotabyssur af gerðinni MP5 sem komu til landsins með norskri herflutningavél í febrúar á þessu ári. Alls voru 150 byssur ætlaðar ríkislögreglustjóra, samkvæmt beiðni hans til norskra yfirvalda.

Deilt hefur verið um hvort um gjöf hafi verið að ræða eða viðskipti. Landhelgisgæslan heldur því fyrrnefnda fram en norsk yfirvöld segja að það standi til að senda íslenskum yfirvöldum reikning. 

Byssurnar enn í biðstöðu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert