Julien Blanc meinað að koma til Bretlands

Julien Blanc í viðtali á CNN í gær.
Julien Blanc í viðtali á CNN í gær. Skjáskot af CNN.com

„Stefnumótaþjálfaranum“ Julien Blanc verður meinað að koma til Bretlands til að halda námskeið í hvernig tæla eigi konur. Þessu greinir BBC frá og einnig er fjallað um málið á vef Sky News. BBC segist hafa heimildir fyrir því að innanríkisráðuneyti Bretlands hafi tekið þessa ákvörðun.

Yfir 150 þúsund manns höfðu skrifað undir áskorun á bresk stjórnvöld um að veita Blanc ekki vegabréfaáritun vegna námskeiða hans sem þykja hvetja til niðrandi og jafnvel ofbeldisfullrar hegðunnar gagnvart konum.

Á vefsíðu sinni Pimping My Game lýsir Blanc aðferðum sínum við að ná til kvenna. „Þær eru móðgandi, þær eru óviðeigandi, þær skilja eftir ör á sálinni en þær eru andskoti áhrifaríkar“

Með því að meina Blanc að heimsækja landið feta bresk yfirvöld í fótspor ástralskra yfirvalda sem drógu vegabréfaáritun Blanc til baka í kjölfar mikils þrýstings frá mótmælendum.

Í morgun bætti fyr­ir­tækið Real Social Dynamics, sem stend­ur fyr­ir komu „stefnu­mótaþjálf­ar­ans“ Ju­lien Blanc til Íslands næsta sum­ar, við ókeypis nám­skeiði í Reykjavík í hvernig taka eigi kon­ur á löpp.

Þegar þetta er skrifað hafa yfir 9.800 manns skrifað undir áskor­un á ís­lensk stjórn­völd um að hleypa Blanc ekki til lands­ins.

Tengdar fréttir:

Bætt við ókeypis daðursnámskeiði

„Borgaðu mér og nauðgaðu þeim öllum“

 Iceland says stop Julien Blanc

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert