Víða búið að loka vegum

Vegna veðurs hefur umferð um Kjalarnes verið lokað við Leirvogsá. Þá er Hellisheiði einnig lokuð ásamt Þrengslum, veginum um Sandskeið og undir Hafnarfjalli. 

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhringinn: 

Suðaustan 20-28 m/s og snjókoma, en slydda eða rigning S- og V-til.Mikil slydda eða rigning SA-lands í nótt. Suðvestan 10-18 él sunnan- og vestanlands.

Suðvestan 8-15 m/s með morgninum og él, en léttir til norðaustanlands. Heldur hægari síðdegis, en hvessir ört norðvestantil með snjókomu annað kvöld, 20-28 þar um miðnætti. Hiti kringum frostmark í nótt, en frost víða 0 til 5 stig síðdegis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert